Leiðbeiningar
Leiðbeiningar eftir skurðaðgerð í munni
Almennar upplýsingar
Til að sárið grói sem best er mikilvægt að
- Forðast að sleikja eða sjúga sárið
- Forðast að snerta sárið með fingrum eða verkfærum
- Forðast tóbak og áfengi fyrstu vikuna
- Forðast líkamlega áreynslu í c.a. 5 daga
- Fljótandi fæði fyrstu tvo dagana og mjúkt fæði þar til saumar eyðast eða eru teknir
- Forðast að neyta vökva með röri
- Forðast heita drykki
- Forðast kornótta fæðu, t.d. jarðarber, chia, músli osfrv.
Verkir
Búast má við eymslum eða verk í sárinu fyrstu dagana
- Mikilvægt er að nota verkja- og bólgueyðandi lyf eftir þörfum
- Mikilvægt að taka verkjalyf fljótlega eftir aðgerð
- Gott að byrja á 2x parkodin eftir aðgerð og svo á 4 klst fresti út aðgerðardag
- Ekki má taka sterk verkjalyf á tóman maga og mikilvægt er að drekka nóg af vökva á meðan inntöku á parkodin stendur
Gott að vita
Það er eðlilegt að það komi fram bólga eftir aðgerð. Hún nær hámarki á öðrum degi eftir aðgerð og oftast horfin alveg eftir 7-10 daga. Mar á kinn er heldur ekki óeðlilegt
- Gott er að kæla svæðið utan á kinn á aðgerðardag
- Kæling dregur úr verkjum og bólgu
- Kæling flýtir fyrir að blóðið storkni
Burstið tennur en snertið ekki sárið með tannburstanum. Bursta í átt frá sári.
Eftir burstun skal skola munninn með bakteríudrepandi munnskoli 2x á dag í viku 1 mín í senn.
Góð munnhirða er nauðsynleg eðlilegri græðslu sára.