Leiðbeiningar
Leiðbeiningar eftir tannúrdrátt
Almennar upplýsingar
- Ekki skola munninn fyrstu klukkustundirnar eftir aðgerð
- Það er í lagi að drekka kalda tæra drykki – ekki velta í munninum
- Það er í lagi að bursta tennurnar en varastu að bursta sárið.
- Gott er að skola munninn 2x á dag í 5-7 daga með klórhexidin munnskoli (Corsodyl/Gum paroex)
- Ekki byrja að skola fyrr en daginn eftir aðgerð
- Fljótandi og mjúk fæða er æskileg eftir úrdrátt
- Varastu kornóttan mat t.d. músli, korn í brauði, chia ofl.
- Ekki nota sogrör og borðaðu aðeins kaldan mat fyrsta sólarhringinn
Sárið og verkir
- Eðlilegt er að bólga komi fram eftir úrdrátt sem nær hámarki á öðrum degi eftir úrdrátt og er oftast horfin eftir viku. Gott er að kæla aðgerðarsvæði samdægurs með kælipoka utan á kinn
- Væg blæðing er eðlileg fyrsta sólarhringinn og getur munnvatn verið blóðlitað
- Ef blæðir er gott að leggja hreina grisju yfir sárið og bíta þétt í 5-10 mínútur
- Búast má við eymslum og verk í sárinu fyrstu dagana
- Notaðu verkjalyf eftir þörfum
- Almennt er ekki þörf á að ávísa sýklalyfjum eftir úrdrátt hjá heilbrigðum einstaklingum
- Ef sýklalyfjum er ávísað er mikilvægt að taka þau og klára skammtinn
Hafðu samband ef
- Verkir versna á 3-4 degi eftir aðgerð, þá getur verið að blóðstorkan í sárinu hafi losnað, þetta er nefnt „Dry Socket“ og er einfalt að meðhöndla
- Skrifað hefur verið uppá sýklalyf og aukaverkanir gera vart við sig
Verkjalyf
- Ef skrifað hefur verið út bólgueyðandi verkjalyf eins og Íbúfen eða Voltaren er gott að taka paracetamól (t.d. Panodil eða Paratabs) samhliða því.
Fullorðnir (18+) taka 400-600mg af bólgueyðandi lyfi og 500-1000mg af paracetamóli 3-4x á sólarhring. - Bólgueyðandi verkjalyf geta valdið óþægindum í maga, ef þú verður var við slík óþægindi skaltu hætta töku þeirra.
Reykingar geta haft mjög slæm áhrif á sáragræðslu.