Leiðbeiningar

Leiðbeiningar – tannhvíttun

Mikilvægt er að hafa komið í skoðun til tannlæknis áður en meðferð hefst til að ganga úr skugga um að tennur séu heilar og engin skemmd til staðar.

Áður en meðferð hefst

  • Burstið tennur og notið tannþráð áður en gómar eru settir upp
  • Berið lýsingarefni í framhlið góma, nóg að setja punkt á við hrísgrjón á hvern tannflöt
  • Passið að efnið fari ekki upp á tannholdið – mikilvægt að hreinsa umfram efni
  • Setjið góma upp og þrýstið létt á til að efnið leggist vel að tönnum

Opalescence PF 16%
Í fyrsta skiptið er alltaf gott að byrja á 1 klst.
Ef engin óþægindi koma fram má endurtaka hvíttun í allt að 2 vikur samfleytt og lengja tímann hægt og rólega að hámarki 6 klst í senn.

Opalescence PF 20%
Í fyrsta skiptið er alltaf gott að byrja á 1 klst.
Ef engin óþægindi koma fram má endurtaka hvíttun í allt að 2 vikur samfleytt og lengja tímann hægt og rólega að hámarki 3 klst í senn

Ef þú finnur fyrir tannkuli eða öðrum óþægindum skaltu hætta meðferð og hafa samband við tannlækninn þinn næsta virka dag.

Eftir meðferð

  • Þegar gómar eru fjarlægðir úr munni er mælst til að nota tannbursta varlega til að fjarlægja efnið
  • Skolið munninn vel til að vera viss um að allt efnið sé farið
  • Gómar eru þrifnir með tannbursta og köldu vatni
  • Varist að drekka kaffi/te/rauðvín og borða litsterkan mat
  • Ef það er gert er mikilvægt að skola munninn vel með vatni eftirá
  • Þegar þeim litaskala er náð sem sóst er eftir, er aðeins þörf á að viðhalda litnum með einni hvíttun á nokkurra mánaða fresti í stuttan tíma í senn.
Allar leiðbeiningar